Skilmálar þjónustu

Pantanir

Arctic Health tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Réttur er áskilinn til að staðfesta pantanir símleiðis í undantekningartilfellum.


Afhendingartími er að jafnaði 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað en gæti verið lengri í kringum jól og stóra verslunardaga. Varan er send beint heim til kaupanda á Íslandi með Póstinum.

Sendingarkostnaður

Það er enginn sendingarkostnaður á vörusendingum innan Íslands. Vörur eru sendar sem bréfsendingar með Póstinum. 

Sendingar til annarra landa en Íslands eru FOB.

 

Verð

11% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndavillur eða prentvillur og áskilur Arctic Health sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan en ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram. 

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið ahi@ahi.is eða senda Arctic Health staðlað uppsagnareyðublað sem er að finna á vef Neytendastofu www.neytendastofa.is (þar sem jafnframt er að finna frekari upplýsingar um skilarétt), en í kjölfarið skal Arctic Helth láta viðskiptavini í té kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar. Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.

 

Greiðslur

Við bjóðum upp á tvenns konar greiðslumöguleika, kreditkort eða netgíró.

Þú getur greitt fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Valitor sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.

Einnig getur þú greitt með netgíró. Netgíró bíður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Þú þarft að vera með aðgang hjá Netgíró til þess að nýta þér þjónustuna, fyrir þá sem hafa hann ekki er hægt að skrá sig hérna. Þegar þú greiðir með netgíró þarftu aðeins að skrá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur stofnast á viðskiptavin í heimabanka sem greiða þarf innan 14 daga, vaxtalaust.

 

Öryggi og persónuvernd á vefnum

Þegar þú notar vef ahi.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Arctic Health ehf miðlar þeim ekki til annara.

Arctic Health virðir friðhelgi perónuupplýsinga viðskipta vina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.

 

Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)

Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði Arctic Health ehf , www.ahi.is er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Arctic Health þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Arctic Health getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

 

Notkun Arctic Health á vafrarakökum

Með því að samþykkja skilmála Arctic Health Kt. 430300-3180 um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

  • bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
  • að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
  • að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
  • að birta notendum auglýsingar,
  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið,

Arctic Health notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.  

 

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuververnd og meðferð persónuupplýsinga.

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á ahi@ahi.is

Neðst á öllum markpósti sem Arctic Health sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

 

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

 

Höfundaréttur og vörumerki

Texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.ahi.is eru eign Arctic Health ehf.

Kt. 430300-3180 og er öll afritun og endurdreyfing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Arctic Health ehf. Arctic Health er skráð vörumerki í eigu Arctic Health ehf. Og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá Arctic Health ehf.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.